Fótbolti

Dúndurbyrjun Rosenborg | Hólmar spilaði allan leikinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hólmar Örn hefur leikið alla leiki Rosenborg á tímabilinu.
Hólmar Örn hefur leikið alla leiki Rosenborg á tímabilinu. vísir/getty
Rosenborg hefur farið frábærlega af stað í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta og í dag vann liðið stórsigur, 1-4, á Viking á útivelli.

Rosenborg hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni með markatölunni 16-2 og situr í toppsæti hennar með 10 stig.

Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn í miðri vörn Rosenborg en Alexander Söderlund, fyrrverandi leikmaður FH, skoraði fyrsta mark liðsins.

Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Viking en fór af velli á 64. mínútu. Steinþór Freyr Þorsteinsson sat allan tímann á varamannabekknum en þeir Indriði Sigurðsson og Björn Daníel Sverrisson eru frá vegna meiðsla.

Þá gerðu Odd og nýliðar Mjondalen 2-2 jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×