Lífið

Draumaprinsinn verður að vera með sixpack

„Hún er dulafull og áhugaverð persónan sem kynnt verður til leiks í þættinum Áttan á Bravó í kvöld klukkan átta,“ segir Jóhann K. Jóhannsson, kynningarstjóri útvarpssviðs 365.

Dóra Sigrúnar hefur ekki verið áberandi í fjölmiðlum hingað til en hún segir að nú komi það til með að breytast. Dóra hefur starfað sem lífskúnster og jógakennari undanfarin ár en langar núna til þess að miðla af þekkingu sinni til landsmanna.

„Eftir að hrunið skall á hefur fólk átt svolítið erfitt og ég veit að með öllum því sem ég hef gert og lært, þá get ég breytt því,“ segir Dóra.

Dóra er einhleyp og lifir lífinu til fulls.

„Ég þarf engann karlmann – ég er sjálfri mér næg, en draumaprinsinn á eftir að koma.“

Aðspurð hvernig draumaprinsinn lítur út svarar Dóra:

„Hann verður að vera með sixpack!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×