Lífið

Draumadoktorinn á lausu

Patrick Dempsey fer nú í hóp heitustu piparsveinanna í Hollywood.
Patrick Dempsey fer nú í hóp heitustu piparsveinanna í Hollywood.
Leikarinn Patrick Dempsey og eiginkona hans Jillian Fink eru að skilja eftir fimmtán ára hjónaband.

Dempsey er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Dr. Derek Shepard eða Dr. McDreamy í læknadramanu Grey's Anatomy.

Í yfirlýsingu sem þau sendu tímaritinu People segja þau að ákvörðunin hafi verið erfið, en skilnaðurinn sé í góðu og velferð barnanna þeirra sé það sem skipti þau mestu máli.

Saman eiga þau hjónin þrjú börn, dótturina Tallulah Fyfe, 12 ára, og tvíburana Sullivan Patrick og Darby Galen, 7 ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×