Íslenski boltinn

Dramatískur sigur ÍBV þremur dögum fyrir bikarúrslit

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sigríður Lára, hér lengst til hægri, kom ÍBV yfir.
Sigríður Lára, hér lengst til hægri, kom ÍBV yfir. vísir/vilhelm
ÍBV vann dramatískan 2-1 sigur á Fylki í 11. umferð Pepsi-deildar kvenna, en leikið var á Hásteinsvelli.

Sigríður Lára Garðarsdóttir kom ÍBV yfir af vítapunktinum á fjórðu mínútu og þannig stóðu leikar langt fram í síðari hálfleik.

Varamaðurinn Rut Kristjánsdóttir jafnaði metin á 78. mínútu, en fjörinu var ekki lokið því natsha Moraa Anasi tryggði ÍBV sigur í uppbótartíma.

Eyjastúlkur eru á leið í bikarúrslit á föstudaginn, en liðið spilar þá við Stjörnuna. Þetta er sannarlega gott veganesti í þann leik.

ÍBV er með 18 stig í fimmta sætinu, en Fylkir er í sjöunda með 10 stig. Þær eru enn í fallhættu, en þær eru einungis þremur stigum frá KR sem er í fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×