Innlent

Dræm þátttaka í verkfalls­kosningu sjómanna

Sveinn Arnarsson skrifar
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands
Aðeins rúmlega fjórir af hverjum tíu félögum innan Sjómannasambands Íslands höfðu kosið í gær í atkvæðagreiðslu um ótímabundið verkfall sjómanna. Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins, segir mikilvægt að sem allra flestir nýti sér atkvæðarétt sinn.

„Það er mismunandi hvernig félögin innan okkar raða hafa kosið. Þetta er allt frá 20 prósent kjörsókn upp í um 70 prósent. Hins vegar eru stærri félögin sem hafa verið kannski örlítið rólegri og því draga þau heildina aðeins niður,“ segir Valmundur og vonast eftir að sem flestir kjósi með verkfalli.

„Um áramótin erum við búnir að vera með lausan samning í sex ár og erum komin á þann stað að við getum ekki samið um launin. Því teljum við mikilvægt að boða til verkfalls.“

Kosið verður til hádegis á mánudag og munu úrslit í kjörinu verða ljós fljótlega upp úr hádegi samdægurs. Verði verkfall samþykkt mun flotinn leggjast við bryggju þann 10. nóvember næstkomandi. Sömu sögu má segja um Sjómannafélag Íslands, en þar hafði kjörsókn verið undir 40 prósentum í gær.

Samningar náðust milli stjórnar sjómannafélaganna og SFS á árinu en þeim var hafnað í kosningu félagsmanna. Haldinn var einn fundur milli aðila eftir það sem bar ekki árangur og því boðað til atkvæðagreiðslu um verkfall. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×