Lífið

Dóri DNA og Seppi "böttluðu“ fyrir utan Bónus í Mosó

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Dóri DNA grjótharður
Dóri DNA grjótharður Mynd/IllD
Rappararnir Dóri DNA og Seppi rifjuðu upp gamla takta og „böttluðu“ hvorn annan í Mosfellsbæ fyrr í dag.

Eins og sjá má á myndinni hér að ofan var Dóri, einnig þekktur sem Halldór Halldórsson, klæddur í búning eins og Nintendo-hetjan Super Mario. Í dag eru vinir Dóra að steggja hann, en hann mun giftast Magneu Guðmundsdóttur, unnustu sinni, í sumar. Þau trúlofuðust í Rússlandi fyrir tæpum tveimur árum.

Dóri og Seppi, einnig þekktur sem Elvar Gunnarsson, voru meðal fremstu „battlara“ íslensks rapps fyrir um áratug síðan. Þeir tóku báðir þátt í keppninni Rímnastríð sem var einskonar Íslandsmót í „battli“. Seppi vann keppnina árið 2002 og Dóri árið 2004.

Dóri DNA var meðlimur hljómsveitanna Bæjarins bestu og 1985! og Elvar var í 110 Rottweilerhundum, Afkvæmum Guðanna og síðar í hljómsveitinni Ha Why?

„Battl“ fer þannig fram að tveir keppendur fá fyrirfram ákveðinn tíma til þess að niðurlægja hvorn annan í rappformi. Rímurnar sem þeir rappa eru yfirleitt samdar á staðnum. Þessi listgrein var afar vinsæl hér á landi fyrir um áratug síðan. Keppnirnar Rímnastríð voru vel sóttar og var keppnin árið 2004 sýnd beint á sjónvarpsstöðinni PoppTíví. Einnig var stór „battl“-keppni haldin í Norðurkjallara MH um nokkurra ára skeið. Margir af helstu röppurum landsins stigu á stokk og tóku þátt í þessum keppnum. 

Hér að neðan má heyra eitt þekktasta lag Dóra DNA, sem ber titilinn Mosó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×