Lífið

Dómararnir fengu neyðarfund með framleiðendunum: Komu einum keppanda á óvart og hún fékk sjokk

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jakob Frímann og Ágústa Eva mættu heim til Thelmu.
Jakob Frímann og Ágústa Eva mættu heim til Thelmu. vísir
Dómararnir í Ísland Got Talent voru ekki sáttir með það hversu fáa keppendur framleiðendur þáttarins leyfðu þeim að velja inn í undanúrslitin. Þeir héldu því neyðarfund til að sannfæra þá um að hleypa öðrum keppanda áfram.

Í síðasta þætti af Ísland Got Talent kom í ljós hvað keppendur komust áfram í næstu umferð og fá tækifæri í beinni útsendingu á Stöð 2.

Það var greinilegt að ákvörðunin var dómurunum erfið og völdu þau að lokum 22 atriði áfram, með allskonar krókaleiðum.

Sjá einnig: Þessi atriði komust áfram í Ísland Got Talent

Dómararnir fengu það í gegn að lokum að fá inn einn aukakeppanda inn í hópinn og fengu þau Ágústa Eva og Jakob Frímann það hlutverk að heimsækja einn keppanda sem hafði áður fengið þær fréttir að hún væri ekki á leiðinni áfram.

Þau komu henni Thelmu heldur betur á óvart og tilkynntu henni að hún væri komin áfram í undanúrslitin. Thelmu fékk mikið sjokk þegar dómararnir mættu heim til hennar en atvikið má sjá neðst í fréttinni.

Nú stendur yfir miðasala á miði.is fyrir þá þætti sem verða í beinni útsendingu en fyrsti þátturinn verður næstkomandi sunnudag klukkan 19:10 á Stöð 2. Sigurvegarinn í Ísland Got Talent 3 fær tíu milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×