Bílar

Dísilbílabann í Osló

Finnur Thorlacius skrifar
Mengun af völdum dísilbíla í Osló mældist yfir viðmiðunarmörkum vegna staðviðris.
Mengun af völdum dísilbíla í Osló mældist yfir viðmiðunarmörkum vegna staðviðris.
Í síðustu viku var bannað að aka um Osló á dísilbílum frá þriðjudegi til fimmtudags. Ástæða bannsins var mikil NOx-mengun og vegna staðviðris var hún óvenju mikil. Er þetta í fyrsta skiptið sem sett hefur verið bann við akstri dísilbíla í Osló.

Átti bannið við svokallað Ring 1 svæði borgarinnar. Borgaryfirvöld í Osló útskýrðu bannið með þeim hætti að íbúum borgarinnar stæði hætta af dísilsóti, þó einna helst börnum og gamalmennum, sem og þeim sem þjást af astma og öðrum öndunarfærasjúkdómum.

Nokkur frávikstilfelli fylgdu þó banninu, svo með akstri neyðarbíla með dísilvélum, Plug-IN-Hybrid bílum með dísilvélum og dísilbílum í almenningsþjónustu. Samskonar bann var einnig sett á í Drammen, Sarpsborg og Fredrikstad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×