Deutsche Bank fór úr landi með 15 milljarða Lýsingarfé 21. september 2012 05:00 Gengi krónunnar ætti ekki að hafa orðið fyrir áhrifum vegna greiðslunnar þar sem jafnt magn gjaldeyris kom inn í landið og fór út úr því. Már Guðmundsson er seðlabankastjóri. FRéttablaðið/valli
Dótturfélag Lýsingar seldi gjaldeyri til að greiða Deutsche Bank 35 milljarða króna skuld í mars 2012. Þýski bankinn fór með hluta upphæðarinnar úr landi. Greiðslan hafði ekki áhrif á gengi íslensku krónunnar. Deutsche Bank fékk að fara úr landi með um fimmtán milljarða króna í gjaldeyri í mars síðastliðnum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Féð var hluti af 35 milljarða króna greiðslu sem dótturfélag Lýsingar greiddi til bankans. Hluti greiðslunnar var fjármagnaður með sölu á gjaldeyri. Seðlabanki Íslands segir enga undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál hafa verið veitta vegna þessa. Morgunblaðið greindi frá því á miðvikudag að undanþága hefði verið veitt frá lögum um gjaldeyrismál. Á grunni þeirrar undanþágu hafi tveir stórir erlendir aðilar fengið að skipta 18 milljörðum króna í erlendan gjaldeyri og flytja úr landi, annar aðilinn átti að hafa verið Deutsche Bank. Seðlabankinn sendi frá sér athugasemd vegna fréttarinnar þar sem segir að hún sé „í flestum atriðum röng. Engar undanþágur sem geta haft alvarleg áhrif á stöðugleika krónunnar hafa verið veittar til kaupa á gjaldeyri fyrir krónur til að flytja úr landi[…]. Þá hefur Seðlabankinn ekki notað gjaldeyrisvaraforða sinn í ofangreindu skyni. Þeir sem þekkja til gjaldeyrismarkaðar vita að hefði undanþága verið veitt með þeim hætti sem lýst er í blaðinu hefði gengi krónunnar fallið verulega. Ekkert slíkt hefur gerst, enda engin undanþága af þessu tagi verið veitt". Greiðslan til Deutsche Bank, sem frétt Morgunblaðsins vísar til, er hluti af 35 milljarða króna greiðslu Peru ehf., dótturfélags Lýsingar, til bankans sem fór fram 16. mars síðastliðinn, þremur dögum eftir að lög um gjaldeyrishöft voru þétt. Pera er veðsett Deutsche Bank til tryggingar á skuldbindingum Lýsingarsamstæðunnar við bankann. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins seldi Pera gjaldeyri til að fjármagna greiðsluna og borgaði Deutsche Bank alla upphæðina í íslenskum krónum inn á reikning í Arion banka. Deutsche Bank fékk síðan að fara úr landi með sömu upphæð. Seðlabankinn ætti því ekki að verða fyrir áhrifum af þessari greiðslu enda kom jafnt magn gjaldeyris inn í landið og fór út og engin undanþága var veitt. Ljóst er að upphæðin er farin út af reikningnum hjá Arion banka. Það sést á árshlutareikningi bankans sem birtur var í síðasta mánuði, en í honum kemur fram að innstæður Arion banka hafi dregist saman um 44,8 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Heimildir Fréttablaðsins herma að sá samdráttur sé fyrst og fremst vegna þess að Deutsche Bank hafi tekið 35 milljarða króna út úr bankanum.thordur@frettabladid.is
Mest lesið Húrra dregur saman seglin Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Innleiða gervigreindina í MS Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Sjá meira