Lífið

Deitar pródúsentinn sinn í laumi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Söngkonan Miley Cyrus er búin að vera að deita Mike Will Made-It, sem pródúseraði plötu hennar Bangerz, síðustu níu mánuði. Þetta kemur fram í tímaritinu Us Weekly.

Allir í hennar hring vita að þau hafa verið saman í allan þennan tíma,“ segir heimildarmaður tímaritsins. Samkvæmt honum byrjuðu þau Miley og Mike að deita rétt eftir að Miley hætti með unnusta sínum, leikaranum Liam Hemsworth, í september í fyrra.

Þá segir annar heimildarmaður að þó að Miley hafi verið afar upptekin að ferðast um heiminn á tónleikaferðalaginu Bangerz hafi þau Mike verið í góðu sambandi og heyrist í síma á hverjum degi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×