Innlent

David Erik nýr formaður LÍS

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
David Erik Mollberg
David Erik Mollberg
David Erik Mollberg tók við formennsku Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS) á skiptafundi félaganna þann 20. maí síðastliðinn. Hann hlaut kjör á árlegu landsþingi samtakanna sem haldið var helgina 18. - 20. mars.

David tekur við formannsembættinu af Nönnu Elísu Jakobsdóttur. David stundar nám í rekstarverkfræði við Háskólann í Reykjavík og hefur setið sem fulltrúi SFHR í LÍS síðastliðið ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá LÍS.

Þingið var skipulagt af Stúdentafélagi Háskólans í Reykjavík (SFHR) og var haldið í Háskólanum á Bifröst með yfirskriftinni „Rannsóknir og nýsköpun -  fjárfesting til framtíðar“. Alls sóttu þingið um fimmtíu fulltrúar frá öllum aðildarfélögum LÍS en allir háskólar á landinu, auk Sambands íslenskra námsmana erlendis, eiga aðild að samtökunum.

Aðildarfélögin tilnefndu fulltrúa sína í framkvæmdastjórn á landsþinginu en í henni sitja:

Anna Sif Guðmundsdóttir og Ketill Sigurður Jóelsson fyrir Félag stúdenta á Akureyri, Erna Hlín Einarsdóttir og Hallur Guðmundsson fyrir Nemendafélag Háskólans á Bifröst, Jóhann Már Berry og Pavle Estrajher fyrir Nemendafélag Landbúnaðarháskóla Íslands, Elsa María Guðlaugsdóttir og Sólbjört Sigurðardóttir fyrir Nemendaráð Listaháskóla Íslands, Tinna Dögg Guðlaugsdóttir og Íris Gunnarsdóttir fyrir Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík, Elise Englund Berge fyrir Stúdentafélag Hólaskóla, Aldís Mjöll Geirsdóttir og Håkon Broder Lund fyrir Stúdentaráð Háskóla Íslands og Kolbrún Þorfinnsdóttir og Þórður Jóhannsson fyrir Samband íslenskra námsmanna erlendis.

LÍS fékk aðild að ESU með einróma kosningu.

Á stjórnarfundi European Students Union (ESU) sem haldinn var dagana 19. - 21. maí var LÍS samþykkt sem fullgildur meðlimur samtakanna. Á fundinum koma saman fulltrúar frá 45 aðildarfélögum úr 38 löndum í Evrópu til að ræða og afgreiða ýmis mál sem varða eflingu æðri menntunar í Evrópu. Fulltrúrar LÍS voru þau Aldís Mjöll Geirsdóttir, Helga Lind Mar og Þórður Jóhannsson.

Umsóknarferlið tók um það bil ár en í því fólst meðal annars heimsókn teymis frá ESU sem skoðuðu ítarlega samtökin og samskipti þeirra við helstu aðila menntakerfisins sem og þátttöku stúdenta í þróun þess. Eftir heimsóknina skilaði teymið af sér skýrslu sem er tekin var fyrir og rædd á stjórnarfundinum.

LÍS var samþykkt sem fullgildur aðili að ESU með einróma kosningu en það þykir afar sjaldgæft að félag sé kosið einróma.  

LÍS var stofnað árið 2013 og er hlutverk samtakanna að standa vörð um hagsmuni háskólanema hérlendis sem og hagsmuni íslenskra háskólanema á erlendis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×