Tónlist

Dave Grohl sama um Spotify

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Áður var Dave Grohl trommari Nirvana.
Áður var Dave Grohl trommari Nirvana.
Á undanförnum árum hafa margir tónlistarmenn eins og Taylor Swift, Thom Yorke, David Byrne og Pink Floyd gagnrýnt streymissíður svo sem Spotify fyrir að borga ekki listamönnunum nægan skerf. Söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar Foo Fighters, Dave Grohl, er ósammála þessu.

„Mér er drullusama, persónulega,“ sagði Grohl í viðtali við síðuna Digital Spy. „Það er bara ég, af því að við spilum tvisvar á Wembley-leikvanginum í sumar.“

Grohl telur auglýsinguna sem sveitir fá á Spotify bæta upp lítinn gróða. „Ég vil að fólk heyri tónlistina okkar, mér er sama hvort þú borgar einn dal eða tuttugu dali fyrir það, hlustaðu bara á helvítis lagið. En ég get skilið af hverju aðrir gætu verið á móti því.“

„Viltu að fólk hlusti á helvítis tónlistina þína? Gefðu þeim tónlistina þína. Farðu síðan og spilaðu á tónleikum. Ef þau njóta tónlistarinnar þinnar munu þau fara á tónleika. Ég tel það vera svo einfalt og ég held að það hafi virkað þannig einu sinni. Þegar við vorum ungir og í mjög lélegum pönksveitum voru engir starfsmöguleikar en við elskuðum að spila og fólk elskaði að sjá okkur spila.“

Grohl segir jafnframt áhersluna á tækni hafa gert sambandið á milli áhorfenda og tónlistarmanna úrelt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×