Lífið

Dansmömmurnar sökuðu Hönnu Rún um að sofa hjá dómurunum

Guðrún Ansnes skrifar
Hanna Rún er einn af okkar sigursælustu samkvæmisdönsurum. Hún segir fólk oft ekki kunna að samgleðjast.
Hanna Rún er einn af okkar sigursælustu samkvæmisdönsurum. Hún segir fólk oft ekki kunna að samgleðjast. Vísir/Valli
Hanna Rún Bazev Óladóttir er orðin langþreytt á stöðugu baktali og dónaskap. Hún og Nikita Bazev, eiginmaður, barnsfaðir og dansfélagi, fengu heldur óblíðar viðtökur er þau tóku þátt í Ísland Got Talent um liðna helgi.

Hún segist strax eftir fyrsta þáttinn hafa fundið fyrir að ekki væri allt með felldu.

Fullorðið fólk grimmt

Hanna Rún segist ekki óvön þess konar aðförum, en hún hafi verið á milli tannanna á fólki frá barnæsku.

„Í fljótu bragði minnist ég þess að dansmömmurnar voru duglegar við að velta fyrir sér hvort ég svæfi hjá dómurunum þegar ég var tólf ára. Þá þótti ég búin að vinna grunsamlega oft á Íslandsmeistaramótum. Einnig fóru af stað sögur þegar ég vann hjá pabba í Gullsmiðju Óla. Þá talaði fólk um að ég væri að hitta gullsmiðinn, til að græða á honum,“ segir hún.

Hanna Rún segist hneyksluð á hvernig fólk leyfi sér að dæma hana en verst þyki henni hvernig fjölskylda hennar verður fyrir barðinu á þessari þaulsætnu Gróu á Leiti. „Mamma og pabbi hafa alltaf lent mikið í þessu. Fólki er alveg sama hvernig það særir.“

Stöðug neikvæðni

Hanna Rún segir endurkomuna á dansgólfið eftir barnsburð eitt það erfiðasta sem hún hafi gert. Ekki hafi svo bætt úr skák þegar umtalið hófst aftur af fullum þunga. „Þá fóru háværar raddir af stað um að ég hlyti að þjást af átröskun og margir sögðu greinilegt að ég væri að æla upp því sem ég borðaði. Aðrir héldu því fram að ég væri á ólöglegum lyfjum,“ segi hún. Dansparið tók sig til og vann fyrsta Íslandsmeistaramótið sem þau tóku þátt í eftir fæðingu litla drengsins, Vladimirs Óla. „Ég fékk varla að fagna, því ég var dregin strax afsíðis og send í lyfjapróf. Mér þótti það satt að segja ágætt, þá gat ég að minnsta kosti sannað mitt mál og þannig hrist af mér þessar ásakanir.“

Fordómar þrífast vel á Íslandi

Hún segir eiginmann sinn, Nikita, sem er rússneskur, ekki hafa farið varhluta af leiðindunum hérlendis. Hún segir hann ítrekað upplifa fordóma í sinn garð, vegna þess að hann er af erlendu bergi brotinn og tali ekki íslensku. „Hann hefur búið um allan heim og hefur aldrei kynnst öðru eins. Hrokinn og fordómarnir sem hann upplifir eru með ólíkindum.“

Hún segir þau líta hýru auga til Bandaríkjanna, en hér bíði þeirra lítil framtíð í dansinum. „Auðvitað er skelfilegt að hafa ekki fjölskylduna, en hérna blómstrum við ekki eins og við mögulega gætum. San Francisco heillar okkur mikið. Einnig kæmi Þýskaland til greina,“ segir Hanna Rún að lokum, hvergi bangin og spennt fyrir komandi tækifærum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×