Fótbolti

Dagný bjargaði á línu og Portland náði í stig | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dagný í leiknum í nótt.
Dagný í leiknum í nótt. mynd/heimasíða portland
Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn fyrir Portland Thorns sem gerði markalaust jafntefli við Seattle Reign í NWSL-deildinni í Bandaríkjunum í nótt.

Portland hefur byrjað tímabilið vel og er eina ósigraða liðið í deildinni. Dagný og stöllur hennar eru í 2. sæti með 13 stig, einu stigi minna en topplið Chicago Red Stars.

Portland lék án sex bandarískra landsliðskvenna í leiknum nótt en náði samt í stig og hélt markinu hreinu í þriðja sinn á tímabilinu.

Dagný átti stóran þátt í því að Portland fékk ekki á sig mark en landsliðskonan bjargaði á línu þegar korter var eftir af leiknum.

Björgunina og allt það helsta úr leiknum má sjá í myndbandinu hér að neðan.

Dagný hefur leikið sex af sjö leikjum Portland í deildinni og skorað tvö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×