Lífið

Dæturnar vilja ekki flytja að heiman

Vísir/Getty
Söngvarinn Simon Le Bon á í erfiðleikum með að fá dætur sínar þrjár til þess að flytja að heiman.

Hann segir þær vera orðnar svo góðu vanar í foreldrahúsum að það sé ólíklegt að þær flytji út á næstunni.

Dætur hans, Amber 25 ára, Saffron 22 ára og Tallulah 20 ára, búa allar enn í foreldrahúsum og Simon segir í samtali við Daily Telegraph að þær vilji ekki flytja út.

„Fjölskyldan mín er öll uppkomin núna. Það er samt enginn séns að fá þær til að flytja að heiman.“

Í viðtalinu talar hann um að það sé jafnvel vegna þess að þær hafi það svo gott í foreldrahúsum. „Hótel mamma og pabbi er greinilega betra en allar íbúðir,“ sagði hann einnig í viðtalinu.

Dæturnar gætu þó neyðst til þess að flytja í eigin íbúðir á næstunni þar sem Simon og eiginkona hans, Yasmin, eru að fara að gera upp heimili sitt í Suður-London og ætla sér að fækka herbergjunum í húsinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×