Bílar

Citroën Cactus með 2 lítra eyðslu

Finnur Thorlacius skrifar
Eyðslugrannur Citroën Cactus í vindgöngum.
Eyðslugrannur Citroën Cactus í vindgöngum.
Á bílasýningunni í París sem brátt hefst mun Citroën kynna nýja gerð Cactus bílsins sem eyðir aðeins 2 lítrum eldsneytis á hverja hundrað kílómetra. Ber hann nafnið Citroën Cactus Airflow 2L og er í nafninu vitnað í eyðslu hans.

Þessi nýja gerð bílsins er 100 kílóum léttari en fyrri gerð, sem þó er einungis 965 kíló. Það þýðir að nýi Cactus, sem smíðaður er á grunni Citroën C4, er heilum 300 kílóum léttari en hann.

Citroën hefur tekist að minnka loftmótsstöðu nýja bílsins um 20%, meðal annars með opnanlegum loftinntökum framan á bílnum sem stjórnast af akstursaðstæðum.  Þá er stillanlegt loftflæði á 19 tommu felgum bílsins sem dregur úr loftmótsstöðu, sem og stillanlegir flipar í stuðara sem beina lofti kringum framhjólin.

Yfirbygging bílsins er gerð að mestu úr koltrefjum og áli, sem skýrir að mestu hversu léttur bíllinn er. Vélbúnaðurinn samanstendur af 3 strokka brunavél og rafmótorum, sem ekki hefur sést í Cactus áður og á drifrásin heiðurinn af 30% lækkunar eyðslu frá fyrri gerð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×