Fótbolti

Cillessen til Barcelona

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Cillessen kemur til Barcelona frá Ajax.
Cillessen kemur til Barcelona frá Ajax. vísir/getty
Barcelona hefur fest kaup á hollenska landsliðsmarkverðinum Jasper Cillessen frá Ajax.

Cillessen er ætlað að fylla skarð Claudios Bravo sem er að líkindum á leið til Manchester City.

Cillesen skrifaði undir fimm ára samning við Barcelona en talið er að Katalóníufélagið hafi borgað í kringum 15 milljónir evra fyrir þennan 27 ára gamla markvörð.

Cillesen er fimmti leikmaðurinn sem Barcelona kaupir í sumar. Áður voru varnarmennirnir Samuel Umtiti og Lucas Digne og miðjumennirnir Denis Suárez og Andre Gomes komnir á Nývang.

Cillesen mun berjast um markvarðastöðuna hjá Barcelona við Þjóðverjann Marc-André ter Stegen sem hefur verið í herbúðum liðsins frá 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×