Fótbolti

Cavani mun framlengja við PSG

Stefán Árni Pálsson skrifar
Edinson Cavani skorar hér í leik með PSG.
Edinson Cavani skorar hér í leik með PSG. vísir/getty
Edinson Cavani, framherji Paris Saint-Germain, segir að hann sé reiðubúinn að skrifa undir nýjan samning við félagið.

Þessi úrúgvæski leikmaður hefur skorað 24 mörk í 25 leikjum á þessu tímabili en búist er við því að hann semji við franska félagið til ársins 2021.

„Mig langar að vera áfram í París, mér lýður vel hér og ég elska þessa borg. Ég mun því að öllum líkindum framlengja við klúbbinn,“ segir Cavani sem hefur nú þegar fundað með forseta félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×