Lífið

Býður nám á 40 brautum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Kristján Pétur Ásgeirsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, innan um nemendur.
Kristján Pétur Ásgeirsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, innan um nemendur. Mynd/Axel Gísli Sigurbjörnsson
 „Skólinn hefur haft heilmikið að segja fyrir Suðurnesin. Það hefur verið svo dýrmætt fyrir ungmenni hér að geta sótt nám í heimabyggð,“ segir Kristján Ásmundsson skólameistari hins fertuga Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hann byrjaði sem kennari þar fyrir þrjátíu árum en Jón Böðvarsson var fyrsti skólameistarinn og sat í níu ár, þá tók Hjálmar Árnason við.

Nú eru um 1000 nemendur í skólanum og þannig hefur það verið undanfarin ár að sögn Kristjáns. „Síðan eru um 130 grunnskólanemendur, 10. bekkingar, sem taka einstaka áfanga  hjá okkur, það eru virk, fljótandi skil milli grunnskóla og framhaldsskóla, þannig hafa duglegir nemendur ráðið dálítið sínum námshraða og margir lokið stúdentsprófinu á þremur árum,“  upplýsir hann.

Kristján segir skólann bjóða nám á um 40 brautum. „?Þar sem við erum að þjóna öllu svæðinu verðum við að hafa fjölbreytt námsframboð til að geta svarað kröfum nemenda.“

Topparnir í félagslífinu eru Hljóðneminn, söngvakeppnin, árshátíðin og svo starfshlaupið sem er síðasta dag fyrir páska. Þá er keppt í öllum kennslugreinum innan skólans að sögn Kristjáns. „Útskriftarnemendur eru fyrirliðar en allir nemendur leysa þrautir innan afmarkaðs tíma,“ útskýrir hann.

Þegar Kristján er spurður um landsfrægt tónlistarfólk úr röðum nemenda verður hann hinn drýgindalegasti. „Kolrassa krókríðandi eru stelpur úr skólanum okkar og Valdimar var hér. Svo er helmingurinn úr Of Monsters and Man héðan. Það er fullt af flottu tónlistarfólki sem hefur farið hér í gegn.“

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. október 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×