Innlent

Búist við stormi í dag

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/gva
Veðurstofa Íslands varar við stormi á miðhálendinu í dag. Búist er við allt að átján metrum á sekúndu og snörpum vindhviðum sunnan Vatnajökuls og á sunnanverðum Austfjörðum.

Síðdegis má einnig búast við allt að átján metrum á sekúndu á Snæfellsnesi, við Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Vindur af þessum styrk getur verið varasamur fyrir farartæki sem taka á sig mikinn vind, að því er segir í athugasemd frá veðurfræðingi hjá Veðurstofu Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×