Leikjavísir

Búast við þrjú þúsund manns á kvöldopnun ELKO

Samúel Karl Ólason skrifar
Um 200 manna röð myndaðist fyrir utan ELKO Í janúar, þegar PS4 fór fyrst í sölu
Um 200 manna röð myndaðist fyrir utan ELKO Í janúar, þegar PS4 fór fyrst í sölu Vísir/Valli
Kvöldopnun verður í ELKO í Lindum í kvöld vegna útgáfu FIFA 2015. Samkvæmt tilkynningu frá ELKO mun fyrirtækið bjóða upp á valin sértilboð í kvöld. Búist er við að um þrjú þúsund manns mæti, sé tillit tekið til útgáfuopnana fyrri ára.

Einnig verður kvöldopnun í Gamestöðinni í Smáralindinni, en einnig er þar FIFA mót fyrir þá sem forpöntuðu leikinn.

Báðar sölurnar hefjast klukkan tíu í kvöld, en forpöntuð eintök verða einnig afhent þá.


Tengdar fréttir

FIFA 15: Stórkostlegur aðalréttur en meðlætið síðra

FIFA 15 frá EA Sports kemur út í kvöld. Leikurinn er mikilvæg uppfærsla í FIFA-seríunni. FIFA 15 fangar stemningu á flestum völlum Evrópu og lætur spilaranum líða eins og hann sé þátttakandi í alvöru sjónvarpsútsendingu. Kvöldopnanir verða í helstu tölvuleikjaverslunum landsins í kvöld vegna útgáfunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×