Innlent

Búast við framboði Ólafar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Búist er við því að Ólöf Nordal, innanríkisráðherra og fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, gefi kost á sér sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi sem fram fer 23. – 25. október. Þetta er mat samflokksmanna Ólafar sem Fréttablaðið hefur talað við. Ólöf neitaði í gær að tjá sig um mögulegt framboð við fjölmiðla en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er líklegt að hún tilkynni ákvörðun innan fárra daga.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, núverandi varaformaður flokksins, lýsti því yfir í viðtali við Stöð 2 fyrir mánuði að hún hygðist að óbreyttu gefa kost á sér til forystu í flokknum. „Ég held ég hafi mjög góðan stuðning á meðal sjálfstæðismanna, mér hefur alltaf gengið vel í þeim kosningum sem ég hef farið í hjá Sjálfstæðisfslokknum. En svo er þetta bara annað mál og mín staða í stjórnmálum hefur auðvitað breyst eilítið, það liggur alveg fyrir,“ sagði Hanna Birna þá.

Töluverður þrýstingur hefur verið á Ólöfu, sem tók við innanríkisráðuneytinu af Hönnu Birnu í desember, að bjóða sig fram til formanns. Allt þar til á síðustu dögum hefur sú hvatning farið fram utan kastljóss fjölmiðlanna. En undanfarna daga hefur þrýstingurinn aukist með því að einstaka félög innan Sjálfstæðisflokksins hafa skorað á hana í framboð.

Sjálfstæðisfélagið í Langholtshverfi reið á vaðið með ályktun fyrr í mánuðinum.

Seint í fyrrakvöld bættust svo sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi við og skoruðu á Ólöfu að gefa kost á sér. Á mbl.is birtist svo áskorun frá tíu sjálfstæðismönnum á landinu sem allir gegna, eða hafa gegnt, forystuhlutverki í innra starfi flokksins. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að fleiri aðilar kunni að birta áskoranir opinberlega. Ekki náðist tal af Óttarri Guðlaugssyni, formanni Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í gær.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun Hanna Birna ekki berjast fyrir endurkjöri, fari svo að Ólöf gefi kost á sér í embættið. Bjarni Benediktsson mun áfram gefa kost á sér sem formaður flokksins og Guðlaugur Þór Þórðarson mun gefa kost á sér sem ritari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×