Lífið

Búast má við sleggjum úr íslensku tónlistarlífi í Söngvakeppninni í ár

Birgir Olgeirsson skrifar
Rúnar Freyr Gíslason, verkefnastjóri Söngvakeppni Sjónvarpsins.
Rúnar Freyr Gíslason, verkefnastjóri Söngvakeppni Sjónvarpsins. Vísir/Daníel
Á meðal keppenda í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár verða nokkrir sem áhorfendur hafa ekki áður séð, og jafnvel einhverjir sem spekingar hefðu seint giskað á að myndu taka þátt.

Þetta segir Rúnar Freyr Gíslason, verkefnastjóri Söngvakeppni Sjónvarpsins, í samtali við Vísi.

Í hádeginu birtist á Facebook-síðu keppninnar samsett mynd af öllum keppendum í ár og gætu glöggir náð að sjá út hverjir það verða.

Það verður svo formlega tilkynnt í sérstökum þætti í Sjónvarpinu næstkomandi föstudagskvöld hvaða flytjendur og höfundar verða í ár.

Rúmlega 200 lög bárust í keppnina í ár en einungis tólf þeirra voru valin til keppni og verður þeim skipt niður á tvö undankvöld sem haldin verða í Háskólabíói 25. febrúar og 4. mars. Þrjú lög komast áfram úr hverju undankvöldi í úrslitakvöld sem fer fram í Laugardalshöll 11. mars næstkomandi.

Spurður hvort einhverjar breytingar verða á keppninni í ár svarar Rúnar því játandi og segir þær snerta dómnefndina, en vildi ekki gefa upp of mikið og sagði að það yrði tilkynnt síðar. Í fyrra skipuðu átján dómnefnd Söngvakeppninnar og komu þeir úr öllum kjördæmum landsins.

Rúnar Freyr segir áhorfendur geta átt von á því að sjá nokkrar sleggjur úr íslensku tónlistarlífi í keppninni í ár. „Og fólk sem við höfum ekki séð í þessari keppni áður og kannski einhverjir sem sumir hefðu ekki búist við að yrðu í keppninni.“

Í fyrra komu Eurovision-stjörnurnar Sandra Kim og Loreen til Íslands og sungu á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar í Laugardalshöll en Rúnar Freyr segir keppnina hafa náð ákveðnum standard á 30 ára afmæli sínu í fyrra sem skipuleggjendur vilja halda.

„Það var troðfullt á generalprufuna og úrslitakvöldið í Laugardalshöll. Það eru samningaviðræður í gangi við erlenda stórstjörnu um að koma fram einnig í ár.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×