Innlent

Búast má við hellidembum á stöku stað

Birgir Olgeirsson skrifar
Hiti breytist einnig lítið nema þá helst að það kólni aðeins fyrir norðan.
Hiti breytist einnig lítið nema þá helst að það kólni aðeins fyrir norðan. Vísir/Eyþór
Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir að í dag verði svipað veður og var í gær, nokkuð hæg breytileg átt og skúrir víða, en úrkomulítið austast á landinu. Enn er loftið óstöðugt og því má búast við hellidembum á stöku stað, en erfitt er að spá fyrir um með nákvæmum hætti hvar það mun gerast. Hiti breytist einnig lítið nema þá helst að það kólni aðeins fyrir norðan.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag, fimmtudag, föstudag og laugardag:

Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða skúrir, einkum síðdegis. Hiti 10 til 16 stig að deginum.

Á sunnudag:

Vestan- og norðvestanátt, skýjað með norður- og vesturströndinni, en víða bjart annars staðar. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi.

Á mánudag:

Útlit fyrir breytilega átt og skúri, einkum um landið norðanvert. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×