Innlent

Brutu rúður í bílum í Breiðholti

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Einn af bílunum sem mennirnir skemmdu.
Einn af bílunum sem mennirnir skemmdu. Vísir/Thelma
Fjórir ungir menn á aldrinum 16 til 22 ára voru handteknir í Breiðholti seint í gærkvöldi grunaðir um að hafa skemmt yfir tuttugu bíla. Mennirnir köstuðu meðal annars grjóti á bílana og brutu rúður. Þeir voru vistaðir í fangageymslu fyrir rannsókn málsins.

Þá var pizzasendill rændur í Hátúni á þriðja tímanum í nótt af grímuklæddum manni á reiðhjóli. Maðurinn komst undan með pizzu, brauðstangir og Coke.

Þá var kona handtekin á veitingastað í Kópavogi um klukkan hálffimm í morgun. Konan neitaði að gefa upp nafn sitt eða kennitölu og sparkaði í lögreglumann á vettvangi. Hún var vistuð í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×