Innlent

Brotist inn í bílaleigu í Árbænum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ekkert kemur farm í skeyti lögreglu um afdrif vespanna, sem stolið var.
Ekkert kemur farm í skeyti lögreglu um afdrif vespanna, sem stolið var. Vísir/Daníel
Brotist var inn í bílaleigu í Árbæjarhverfi í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt og var lögreglu tilkynnt um að tveir menn  væru á leið af vettvangi á tveimur vespum, sem þeir höfðu stolið.

Annar náðist skömmu síðar og var handtekinn, en hins er enn leitað og er jafnvel talið að þriðji maðurinn tengist málinu. Ekkert kemur farm í skeyti lögreglu um afdrif vespanna, sem stolið var.

Þá var ökumaður stöðvaður grunaður um ölvunarakstur á fjórða tímanum í nótt og var honum sleppt eftir blóðtöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×