Fótbolti

Bróðir Pauls Pogba tilbúinn að sparka hann niður

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Florentin Pogba er öflugur varnarmaður.
Florentin Pogba er öflugur varnarmaður. vísir/getty
Florentin Pogba segist vera tilbúinn að sparka bróður sinn, Paul Pogba, niður þegar Saint-Étienne og Manchester United mætast í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Florentin Pogba hefur leikið með Saint-Étienne frá árinu 2012. Hann er þremur árum eldri en Paul Pogba sem gekk í raðir United fyrir metfé fyrir þetta tímabil.

Paul Pogba er þremur árum yngri en Florentin, bróðir sinn.vísir/getty
Fyrri leikur Saint-Étienne og United fer fram á Old Trafford á fimmtudaginn. Florentin segist vera tilbúinn að gera allt til að vinna leikinn, jafnvel þótt bróðir hans sé í veginum.

„Við erum báðir staðfastir leikmenn,“ sagði Florentin.

„Ef hann er á ferðinni og ég þarf að tækla hann, þá geri ég það. Ég mun ekki rota hann en ef ég þarf að brjóta á honum geri ég það.“

Florentin er tvíburi en tvíburabróðir hans, Mathias, spilar með Spörtu í Rotterdam.

Florentin fæddist í Conakry, höfuðborg Gíneu, í ágúst 1990 en Pogba fjölskyldan fluttist til Frakklands þegar Florentin og Mathias voru átta mánaða gamlir.

Florentin leikur með landsliði Gíneu en ekki Frakklands eins og Paul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×