Tónlist

Brjálað Instagram-stuð á GusGus

Hljómsveitin GusGus hélt afar vel heppnaða útgáfutónleika á plötunni Mexico í Hafnarhúsinu á föstudaginn. 

Þar prufukeyrði sveitin nýtt prógram og var því vægast sagt vel tekið af troðfullum sal aðdáenda sem létu vel í sér heyra alla tónleikana.

Tónleikagestir létu ekki þar við sitja heldur deildu þeir upplifun sinni óspart á Instagram, eins og sjá má hér fyrir neðan.

Tónleikarnir voru prufukeyrsla fyrir heljarinnar tónleikaferðalag sem sveitin verður á um allan heim fram að jólum. „Alveg austur til Síberíu og alveg vestur til Mexíkós, og allt þar á milli,“ sagði Högni Egilsson, einn söngvara sveitarinnar, í viðtali við Fréttablaðið á föstudag.

GusGus er þekkt sem afbragðs tónleikasveit og gefur hún ekkert eftir að þessu sinni. Tónleikarnir eru mikið sjónarspil með glæsilegu myndefni í ætt við hönnunina á Mexico-plötunni. Þorri efnisins er af tveimur nýjustu plötunum en einnig tekur sveitin eldri slagara.

Hér fyrir neðan má sjá myndir og myndbönd frá tónleikagestum.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×