Bílar

Brimborg innkallar 176 Volvo XC90 bíla

Finnur Thorlacius skrifar
Volvo XC90 jeppinn.
Volvo XC90 jeppinn.
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf vegna innköllunar á 176 Volvo bifreiðum af gerðinni XC90. Þeir eru af árgerðunum 2016 og 2017.

Ástæða innköllunarinnar er hugsanlegur samsetningargalli á affalsröri fyrir AC-kerfi, sem getur leitt til leka inn í bílana. Ef af leka inní bílana verður er hætta á bilunum í rafkerfi þeirra.

Viðkomandi bifreiðareigendur munu fá sent bréf frá Brimborg ehf. vegna þessarar innköllunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×