Innlent

Braut rúður í Hafnarfirði

Gissur Sigurðsson skrifar
VÍSIR/STEFÁN
Karlmaður í annarlegu ástandi var handtekinn í Hafnarfirði í gærkvöldi eftir að hafa brotið  þrjár rúður í lögreglustöðinni þar.

Hann sagðist hafa reiðst, þegar enginn kom þar til dyra þegar hann bankaði þar upp á, en ekki kemur fram í skeyti lögreglunnar hvaða erindi hann átti á lögreglustöðina. Hann var vistaður í fangageymslum í nótt.

Sömuleiðis var maðurinn, sem handtekinn var í Mosfellsbæ í gærkvöldi , grunaður um að hafa kveikt þar í bíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×