Lífið

Braust inn til Keanu Reeves

Slapp með skrekkinn
Reeves talaði rólega við konuna sem braust inn á meðan hann beið eftir lögreglu. 
Nordicphotos/Getty
Slapp með skrekkinn Reeves talaði rólega við konuna sem braust inn á meðan hann beið eftir lögreglu. Nordicphotos/Getty
Keanu Reeves lenti í heldur óskemmtilegum aðstæðum á dögunum.

Leikarinn vaknaði um miðja nótt við skrýtin hljóð á heimili sínu í Hollywood-hæðum í Los Angeles.

Hljóðin bárust frá bókasafni kappans og þegar hann opnaði hurðina að herberginu til þess að sjá af hverju hljóðið stafaði blasti við honum kona sem hafði komið sér notalega fyrir í stól í herberginu.

Reeves talaði við konuna sem var hin rólegasta og sagði honum að hún hefði komið til þess að ná tali af honum. Reeves hringdi í framhaldinu í lögreglu sem kom og náði í konuna og fór með hana á viðeigandi sjúkrastofnun en hún hefur átt við geðræn vandamál að stríða.

Atvikið átti sér stað aðeins nokkrum mánuðum eftir að leikkonan Sandra Bullock, sem lék með Reeves í myndinni Speed, lenti í svipuðum aðstæðum á heimili sínu.

Þá hafði karlmaður sem hefur haft Söndru á heilanum komist inn á heimili hennar og var að róta í persónulegum munum hennar. Betur fór en á horfðist þar sem að Sandra náði að loka að sér og hringja í lögreglu sem handtók manninn sem hafði þá verið dágóða stund inn á heimili hennar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×