Fótbolti

Brassarnir skelltu Frökkum

Luis Gustavo fagnar marki sínu í kvöld.
Luis Gustavo fagnar marki sínu í kvöld. vísir/afp
Brasilíumenn spiluðu sambabolta á Stade de France í kvöld.

Þá unnu Brassarnir flottan 1-3 sigur á Frökkum í vináttulandsleik.

Það blés ekki byrlega hjá Brössum í upphafi því Raphael Varane kom Frökkum yfir eftir 21. mínútu. Oscar jafnaði metin á 40. mínútu og þar við sat í hálfleik.

Á 57. mínútu kom Neymar Brössunum yfir og það var svo Luis Gustavo sem kláraði leikinn með marki 20 mínútum fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×