Innlent

Bræður börðust í Hafnarfirði

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Lögregla kom á vettvang.
Lögregla kom á vettvang. vísir/ktd
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var tilkynnt um slagsmál í heimahúsi í Hafnarfirði um sjöleytið í morgun. Þar voru tveir bræður að slást og var annar handtekinn og vistaður í fangaklefa en hinn var fluttur á slysadeild til frekari skoðunar.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur einnig fram að tilkynnt var um innbrot og þjófnað á bar í miðbænum í  gærkvöldi um sexleytið, þar sem hurð var spennt upp og farið inn. Lögregla segir ekki ljóst hvað hafi verið tekið og ekki vitað hver eða hverjir voru að verki.

Lögregla stöðvaði einnig för nokkurra ökumanna í nótt og undir morgun sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×