Lífið

Börnin hrífast ósjálfrátt með

Ása Ottesen skrifar
Helga Rut Guðmundsdóttir tónlistarmenntunarfræðingur heldur tónlistarnámskeið fyrir börn til tveggja ára aldurs.
Helga Rut Guðmundsdóttir tónlistarmenntunarfræðingur heldur tónlistarnámskeið fyrir börn til tveggja ára aldurs. fréttablaðið/gva
„Við sjáum að þessi námskeið hafa ótrúlega mikla þýðingu fyrir börnin sem taka þátt. Það er líklega erfitt að ímynda sér hvað átta mánaða eða jafnvel átján mánaða barn fær út úr skipulagðri tónlistarþátttöku en allir sem koma og sjá börnin í tíma hrífast ósjálfrátt með,“ segir dr. Helga Rut Guðmundsdóttir tónlistarmenntunarfræðingur, sem stendur fyrir tónlistarnámskeiðinu Tónagull sem ætlað er börnum til tveggja ára aldurs.



Fyrsta tónlistarnámskeiðið var haldið í janúar 2004. „Hver tími er um 45 mínútur og er í raun byggður upp eins og tónverk með skýru upphafi og endi og tíðum kaflaskiptum þar sem skiptast á spenna og slökun. Ung börn, sem jafnvel eru ekki farin að ganga eða tala, geta í réttum aðstæðum sýnt ótrúlega þátttökufærni og gefið af sér á músíkalskan hátt.

Þannig skapast oft aðstæður og samspil á meðal barnanna sem minna á tónsköpun og tónlistarspuna fullorðinna,“ segir Helga um námskeiðið.



Helga hefur sérhæft sig í rannsóknum á því hvernig fólk lærir tónlist og segir að því miður sé alltof lítið vitað um ferlið sem á sér stað frá því börn fara að söngla með sjálfum sér og þar til þau eru fær um að halda lagi. „Draumur minn er að stofna íslenskt rannsóknarsetur sem sérhæfir sig í tónlistarrannsóknum á ungbörnum.

Ég held að aukin þekking á því hvernig við skynjum og lærum tónlist á fyrstu mánuðunum sé lykillinn að því að skilja betur mikilvægi tónlistar fyrir manneskjuna,“ segir Helga að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×