Lífið

Borin út úr flugvélinni

Lady Gaga er ekkert venjuleg
Lady Gaga er ekkert venjuleg Vísir/Getty
Söngkonan Lady Gaga er ekki þekkt fyrir að gera hlutina á hefðbundinn hátt. Það mun til dæmis seint gleymast þegar hún mætti á MTV verðlaunin 2011 og var borin inn í eggi

Á miðvikudag lenti hún á flugvellinum í Aþenu og má segja að ferðaklænaður hennar hafi verið þónokkuð óvenjulegur. Aðeins klædd silfurlituðum skeljabrjóstahaldara, g-streng og ljósbleiku netapilsi, var hún borin úr einkaflugvélinni sinni af tveimur dönsurum, klæddum í þrönga pastellitaða samfestinga. 

Þegar inn á flugvöllinn var komið tók hún dansatriði með þeim í gegnum flugvöllinn við mikinn fögnuð aðdáenda hennar, sem mættir voru á flugvöllinn. 

Innblásturinn að búningnum hefur hún líklegast fengið frá einu frægasta málverki fyrr og síðar Fæðingu Venusar eftir Sandro Botticelli. Hún birti myndir á Instagram síðu sinni síðar um kvöldið með skilaboðunum "Gyðja ástarinnar er mætt".
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×