Innlent

Borgarstjóri vígði braut með börnum sínum

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Reykjavíkurborg er í átaki um að efla sundstaði í borginni í þágu lýðheilsu.

Eftirvæntingin var talsverð hjá börnunum sem voru mætt í Árbæjarlaug til að prófa nýju vatnsrennibrautina á meðan beðið var eftir borgarstjóra og börnum hans sem voru mætt til að vígja brautina.

Nýja brautin er endurnýjun eldri brautar og er hún byggð ofan á burðarvirkið sem fyrir var. Hún er yfirbyggð með gagnsæju efni sem á að auka upplifun þeirra sem renna sér.

Sjón er sögu ríkari í myndskeiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×