Lífið

Borðar um 11-12 þúsund kalóríur á dag

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Hafþór í hlutverki Fjallsins í Game of Thrones.
Hafþór í hlutverki Fjallsins í Game of Thrones. Vísir/HBO
Hafþór Björnsson sem heimurinn þekkir best í hlutverki Fjallsins í Game of Thrones þáttunum undirbýr sig nú fyrir World Strongest Man kraftakeppnina sem fram fer á næstunni. Stór hluti af því að koma líkamsvélinni í rétt stand fyrir keppnina er mataræði. Hafþór deildi fyrir sjö vikum síðan með aðdáendum sínum á Instagram daglegum matseðli sínum fyrir næstu daga. Hann mælir ekki með því að aðrir leiki þetta eftir sér.

Á matseðlinum yfir daginn (eruð þið tilbúin?) eru m.a. 14 egg, 350 grömm af haframjöli, 900 grömm af nautakjöti, 500 grömm af laxi, 900 grömm af sætum kartöflum, 400 grömm af kjúkling og 400 grömm af kartöflum. Þetta er fyrir utan öll fæðubótarefnin, ávextina, grænmetið, vatnið og auka próteinið sem hann tekur inn yfir daginn.

Hér fyrir neðan má sjá Fjallið sigra keppnina um sterkasta mann Evrópu í fyrra.

Independent gagnrýnir mataræðið

Dagblaðið Independent hefur nokkrar áhyggjur af mataræði Fjallsins og gagnrýnir það í grein á vef sínum. Þar er meðal annars bent á að engin vísindaleg rök séu til fyrir því að innbyrða fæðubótarefni á borð við BCAA sem Hafþór gerir. Það inniheldur mikið magn af amínósýrum og er talað um að það skili svipuðum árangri að drekka nóg af mjólk. Helsti munurinn er að BBCA vinnur betur gegn sárum vöðvum en munurinn sé í raun það lítill að ekki sé ástæða til þess að háma efnið í sig.

Í greininni er því haldið fram að maður á stærð við Hafþór ætti að láta sér nægja að innbyrða um 70 grömm af próteini við hverja máltíð en bent er á að hann er líklegast að fara vel yfir 100 grömmin við hverja máltíð.

Talað er um að hann innbyrði um 11- 12 þúsund kalóríur á dag sem gæti verið hættulegt hjarta hans. Einnig er talað um það í greininni að þó svo að slíkt gæti reynst hættulegt fyrir meðaljón sé Hafþór hvergi eins og fólk er flest í þessum efnum og því séu hugsanlega önnur náttúruöfl að verki en hjá okkur hinum.

Hér fyrir neðan má sjá færslu Hafþórs í heild sinni. Verði þér að góðu Hafþór!

People been asking me a lot about my diet and what I eat! Here's my diet plan for my preparation for World's Strongest Man 2016! Yes this is a lot & I don't recommend YOU to try this!! 6:50 Morning workout! Cardio + CORE for 30min BCAA Hardcore from Chained Nutrition, Glutamine from Star Nutrition + handful of almonds 7:30 8 eggs + 200gr Oats + blueberries & strawberries + avocado 9:30 400gr Beef, 400gr Sweet potatoes, handful of spinach & greens 11:50 BCAA Hardcore from Chained Nutrition, glutamine from Star Nutrition, 12:00 400gr Chicken + 400gr potatoes, greens + some fruits 14:00 Blender = 150gr oats or sweet potatoes, 2 bananas150gr kelloggs rice krispies, frozen berries, handful almonds, peanut butter and glutamine from Star Nutrition 14:30 Training strongman, BCAA Hardcore from Chained Nutrition, glutamine from Star Nutrition, Vitargo 17:30 60gr protein + 2 banans 18:00 500gr beef + potatoes, greens 20:30 500gr salmon + 500gr sweet potatoes 22:30 50gr casein protein from Star Nutrition or 6 eggs + avacado + 30gr almonds + 50gr peanut butter Drink a lot of water throughout the day + Juices to get more calories!! middle of the night 50gr casaine protein or raw eggs

A photo posted by Hafþór Júlíus Björnsson (@thorbjornsson) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×