Lífið

Bond slasast við tökur á ný

MEIDDUR Leikarinn Daniel Craig komst í hann krappan á Ítalíu.
MEIDDUR Leikarinn Daniel Craig komst í hann krappan á Ítalíu.
Leikarinn Daniel Craig fékk höfuðhögg við tökur á myndinni Spectre þegar verið að taka upp eltingaleik á bílum í Róm á Ítalíu í vikunni. Craig var á Aston Martin-bifreið þegar hann skellti höfðinu utan í innréttingu bílsins. Læknir hlúði að Craig og gaf honum svo grænt ljós á að halda tökum áfram. Þetta er í annað sinn sem Craig meiðist við tökur á myndinni, en í síðustu viku meiddist hann á hné við tökur í Austurríki. Þá meiddist aðstoðarleikstjórinn Terry Madden alvarlega og brotnaði á báðum fótum þegar trukkur sem hann var á klessti á hlöðu á settinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×