Leikjavísir

Boða fyrstu stikluna fyrir Destiny 2

Kjartan Kjartansson skrifar
Plakat fyrir Destiny 2 sem er væntanlegur síðar á þessu ári.
Plakat fyrir Destiny 2 sem er væntanlegur síðar á þessu ári.
Leikjaframleiðandinn Bungie kynti undir spenning aðdáenda Destiny í dag með stuttri stiklu fyrir framhald leiksins sem búist er við að komi út í haust. Bungie boðar alvöru stiklu fyrir Destiny 2 á morgun.

Fantasíuskotleikurinn Destiny kom út árið 2014 og á sér milljónir aðdáenda um allan heim. Þeir hafa beðið eftir frekari fréttum af framhaldi leiksins með mikilli eftirvæntingu og fengu loks eitthvað fyrir sinn snúð í dag.

Skammt er síðan myndum af plakötum fyrir Destiny 2 var lekið. Af þeim mátti ráða að útgáfudagur leiksins væri í september.

Í stuttu stiklunni hér fyrir neðan kemur fram að stikla í fullri lengd verði birt opinberlega á morgun, fimmtudaginn 30. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×