Innlent

Blómum stolið af krönsum í Hólavallagarði

Jakob Bjarnar skrifar
Kransarnir voru settir upp við leiðið á mánudagskvöld en aðkoman var ekki falleg þremur sólarhringum síðar.
Kransarnir voru settir upp við leiðið á mánudagskvöld en aðkoman var ekki falleg þremur sólarhringum síðar.
Hún var ekki skemmtileg aðkoman að leiði sem búið er að taka frá í Hólavallagarði. Gömul kona var jarðsungin á mánudag, bálför stendur fyrir dyrum og á meðan voru kransar sem bárust í athöfnina hafðir við leiðið. Þegar dætur hinnar látnu komu svo að leiðinu þremur sólarhringum síðar var búið að reita blómin af krönsunum.

Sigríður María Jónsdóttir er önnur dætranna og hún segir ömurlegt að fólk hegði sér með þessum hætti. Hvert og eitt einasta blóm hafði verið lesið af krönsunum og borðarnir lágu eins og hráviði um kring. „Við fengum algjört sjokk, við urðum svo aumar. Þetta voru litirnir hennar, mamma vildi blátt. Við urðum bálvondar, sárar og ekki síst sorgmæddar. Þetta er svo mikið virðingarleysi.“

Sigríður María segist hafa orðið miður sín þegar hún kom að leiði móður sinnar.
Systurnar eru tvær en þær eiga bróður í Ameríku og einn kransinn var einmitt frá honum og hans fjölskyldu. „Við urðum svo aumar að það lá við að við færum að gráta. Þarna er leiði gamallar og góðrar konu – þetta er svo mikil óvirðing við allt og alla,“ segir Sigríður María í samtali við Vísi.

Þær systur settu sig í samband við umsjónarmann Hólavallagarðs og hann sagði að þetta hafi fráleitt verið neinn af hans mönnum og blessunarlega hafa þeir þar verið að mestu lausir við skemmdarverk og gripdeildir.

Leiðið er við Suðurgötuna, innganginn þar og hugsanlega hafa einhverjir, þá með því að skyggnast sérstaklega í garðinn séð kransana og látið greipar sópa – og svo má náttúrlega sjá leiðið vel ef fólk á leið um garðinn sjálfan. „Þetta er alveg ömurlegt,“ segir Sigríður María.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×