Innlent

Björguðu hval úr neti trillukarls í Skagafirði

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Á vef Landhelgisgæslunnar má nú sjá myndband frá því þegar áhöfn Ægis losaði hnúfubak úr netatrossu í gærmorgun.

Á síðunni kemur fram að skipstjórinn á Gammi SK 12 hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar rétt rúmlega ellefu í gærmorgun og óskaði eftir aðstoð gæslunnar við að losa hnúfubak sem hafði fest sig í netatrossu sem hann var að draga á Skagafirði.

Á vef Landhelgisgæslunnar kemur fram að skipstjórinn hafði sjálfur reynt að losa hnúfubakinn en hafði við það tapað hakanum sínum þegar hvalurinn sló hann frá sér með sporðinum. „Taldi hann sig því ekki eiga annara kosta völ en að óska eftir aðstoð. Áhöfn varðskipsins Ægis var við vinnu um borð við höfnina á Sauðárkróki og hélt léttabátur skipsins áleiðis út fjörðinn og var kominn að hvalnum rúmum hálftíma eftir að óskin barst,“ segir á vef gæslunnar.

Þar segir einnig:

„Brösulega gekk að nálgast skepnuna en hann reyndi að synda sig lausan með tilheyrandi buslugangi og látum. Það var ljóst að blýteinn netatrossunnar var fastur um sporðinn á hvalnum og lítið gekk hjá honum að slíta sig frá. Annar hnúfubakur var þá kominn á staðinn og virtist vera að meta aðstæður. Það fór svo að lokum að varðskipsmenn náðu að skera á teininn svo hnúfubakurinn losnaði og spratt af stað. Hann þakkaði fyrir sig með einu sporðakasti og sást svo ekki meir.“

Hér að neðan má sjá myndskeið af björguninni.

Áhöfn varðskipsins Ægis bjargar hnúfubak á Skagafirði/Coast guard rescues a humpback whale, entangled in a n from Landhelgisgaeslan on Vimeo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×