Innlent

Björguðu fílsunga úr ræsinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hér má sjá fílsungann fastan í ræsinu áður en honum var bjargað.
Hér má sjá fílsungann fastan í ræsinu áður en honum var bjargað.
Fílsunga var bjargað á Srí Lanka í gær eftir að hann datt ofan í holræsi í borginni Hambantota.

Björgunarmennirnir notuðu meðal annars hamra og meitla til að brjóta upp holræsið svo hægt væri að ná unganum upp.

 

Þegar búið var að bjarga fílsunganum var farið með hann á dýraspítala til aðhlynningar en talið er að hann hafi fótbrotnaði við fallið.

Hér að neðan má sjá myndband frá björgunaraðgerðunum í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×