Íslenski boltinn

Bjarni hættur hjá Fram

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarni Guðjónsson er hættur eftir eins árs starf hjá Fram.
Bjarni Guðjónsson er hættur eftir eins árs starf hjá Fram. Vísir/Daníel
Fram hefur staðfest það sem Vísir greindi frá fyrr í dag, að Bjarni Guðjónsson sé hættur sem þjálfari liðsins.

Í fréttatilkynningu frá Fram segir:

„Samkomulag hefur náðst milli Knattspyrnudeildar Fram og Bjarna Guðjónssonar um að hann hætti störfum sem þjálfari meistaraflokks félagsins.

„Við fall í 1. deild breyttust fjárhagslegar forsendur samnings knattspyrnudeildar Fram og Bjarna og var það sameiginleg ákvörðun beggja aðila að hætta samstarfinu.

„Fram þakkar Bjarna Guðjónssyni og Úlfi Blandon aðstoðarþjálfara, sem jafnframt lætur af störfum fyrir félagið, ánægjulegt samstarf og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni.

„Stjórn knattspyrnudeildar hefur þegar hafið leit að eftirmanni Bjarna og stefnir að því að ganga frá ráðningu nýs þjálfara hið fyrsta.“

Líkt og Vísir greindi frá er Aðalsteinn Aðalsteinsson líklegastur til að taka við Fram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×