Fótbolti

Bjarni Ben fékk mynd af sér með Fabio Cannavaro

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Cannavaro, hér fyrir miðju ásamt stuðningsmönnum Stjörnunnar.
Cannavaro, hér fyrir miðju ásamt stuðningsmönnum Stjörnunnar. Mynd/Facebook-síða Bjarna
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, er mættur til Mílanó til þess að fylgjast með leik Stjörnunnar og Inter í kvöld en hann hitti fyrrum fyrirliða ítalska landsliðsins, Fabio Cannavaro á kaffihúsi í dag.

Bjarni sem lék með Stjörnunni um tíma lætur sig ekki vanta á seinni leik liðanna á San Siro þrátt fyrir að staðan sé afar erfið en Inter vann fyrri leik liðanna 3-0.

Leikurinn er hluti af 4. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar en leikurinn í kvölds hefst klukkan 18.45 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport ásamt því að fylgst verður með gangi mála á Vísi.

Það má gera ráð fyrir um 400 stuðningsmönnum Stjörnunnar á leiknum í kvöld en það var gríðarlega góð stemming á leiðinni og klæddist flugmaður hópferðarinnar treyju liðsins í tilefni þess eins og sjá má hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×