Íslenski boltinn

Bjarni: Þessi frétt er tóm þvæla

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gary Martin í leik með KR.
Gary Martin í leik með KR. Vísir
Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, segir að það sé ekki rétt að Val hafi verið boðið að kaupa Gary Martin frá félaginu eins og fullyrt var á 433.is í dag.

„Þetta er eins vitlaust og hægt er að hafa það. Þetta er bara tóm þvæla,“ sagði Bjarni um málið og vildi ekki hafa frekari orð um það. Hann staðfesti þó að það ríkti ekki ósætti á milli hans og Gary.

Gary Martin skoraði eitt mark og lagði upp annað eftir að hafa komið inn á sem varamaður í 3-1 sigri KR á FH á sunnudagskvöld.

Eftir leikinn sagðist hann ósáttur við að bæði byrja á bekknum og spila á kantinum. Hólmbert Aron Friðjónsson var tekinn fram yfir Gary í byrjunarliði KR í fjarveru Þorsteins Más Ragnarssonar sem er meiddur.

„Ég vel ekki liðið. Það er ekki mitt starf að velja liðið. Ef ég byrja þá stend ég mig eins vel og ég get. Ég læt hann [Bjarna] um að velja liðið,“ sagði Gary við Vísi eftir leikinn á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×