Innlent

Biskup forfallaðist vegna flensu: Jólahátíðin kemur til allra

Heimir Már Pétursson skrifar
"Það er dálítið merkilegt að hugsa til þess að jólin koma í raun og veru til allra hvort sem þau eru kristinnar trúa eða ekki.“
"Það er dálítið merkilegt að hugsa til þess að jólin koma í raun og veru til allra hvort sem þau eru kristinnar trúa eða ekki.“ Vísir/Vilhlem
Þúsundir manna sækja hátíðarmessur í kirkjum landsins í dag. Biskup Íslands átti að predika í hátíðarmessu í Dómkirkjunni í morgun en forfallaðist vegna skæðrar flensu. Hún segir jólin koma til allra.

Góð kirkjusókn var í gær aðfangadag en það er margra siður að fara í miðnæturmessur á þeim degi. En það er líka messað alls staðar um land í dag, bæði í morgun og eftir hádegi. Til að mynda verður hátíðarmessa í Hallgrímskikrju klukkan tvö. Til stóð að Agnes M. Sigurðardóttir biskub Íslands predikaði að venju í dómkirkjunni í Reykjavík klukkan ellefu í morgun.

„En ég ligg bara hérna í bælinu í pest, er aðeins komin með röddina aftur,“ segir Agnes í samtali við fréttastofu. Það má því kannski segja að vegir guðs séu órannsakanlegir?

„Já, það má segja það,“ segir Agnes.

Miklar annir hjá prestum landsins

Agnes segir jóladagana eðilega vera annasama hjá prestum Þjóðkirkjunnar enda sé kirkjusókn alla jafna mikil yfir hátíðardagana.

„Já, og prestar landsins, þeir sem komast fyrir ófærð og óveðri ef það er, eru úti um allt að koma sér á milli staða og messa. Það er yfirleitt mikið að gera á jólum. Prestar í dreifbýlinu hafa fleiri en eina kirkju, allt upp í átta eða níu kirkjur þeir sem flestar hafa.“

Biskup segir jólin eðli málsins samkvæmt eina mikilvægustu hátíð kristinna manna og flest starfsemi sem hægt sé að leggja niður sé lögð niður í dag.

„Það er dálítið merkilegt líka að hugsa til þess að jólin koma í raun og veru til allra hvort sem þau eru kristinnar trúa eða ekki.“

Vopnahlé í Víetnam

Og Agnesi er í þessu samhengi hugsað til eldhúss æsku sinnar heima á Ísafirði þar sem faðir hennar séra Sigurður Kristjánsson var sóknarprestur í langan tíma.

„Ég man eftir því þegar ég var krakki og Víetnamstríðið í algleymingi, það er sterkt í barnsminningunni, að það væri vopnahlé á jóladag. Þetta situr í minni mínu því það var alltaf hlustað á hádegisfréttirnar yfir hádegismatnum. Þannig að hátíðin kemur til allra, alveg sama við hvernig aðstæður þeir búa.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×