Fótbolti

Birkir spilaði í markalausu jafntefli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Birkir í leik með fyrrum félagi sínu, Sampdoria.
Birkir í leik með fyrrum félagi sínu, Sampdoria. Vísir/Getty
Birkir Bjarnason og félagar í Pescara gerðu markalaust jafntefli við Trapani í ítölsku B-deildinni.

Birkir spilaði allan leikinn á miðju Pescara, en leikurinn var liður í fyrstu umferð deildarinnar þar í landi, en liðin lentu í 14. og 15. sæti deildarinnar á síðasta tímabili.

Birkir er í landsliðshóp Lars Lagerback og Heimis Hallgrímssonar fyrir leikinn gegn Tyrklandi í byrjun næsta mánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×