Innlent

Birgitta ekki boðað formenn hinna flokkanna formlega til fundar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Birgitta Jónsdóttir ræðir við fjölmiðla á Bessastöðum á föstudag eftir að hún fékk umboð til stjórnarmyndunar.
Birgitta Jónsdóttir ræðir við fjölmiðla á Bessastöðum á föstudag eftir að hún fékk umboð til stjórnarmyndunar. vísir/eyþór
Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata, sem nú er með umboðið til að mynda nýja ríkisstjórn hefur ekki boðað formenn Vinstri grænna, Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar til formlegs fundar við sig á morgun.

 

Í samtali við Vísi segist Birgitta þó gera ráð fyrir því að hún hitti formenn þessara fjögurra flokka á morgun með það fyrir augum að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður og að þá muni liggja fyrir hvaða tímaramma flokkarnir gefi sér í viðræðurnar. Í kjölfarið mun hún upplýsa Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, um stöðuna.

 

„Ég ætla bara að heyra í formönnunum á morgun þegar við hittumst öll á fundi í forsætisráðuneytinu vegna komandi þinghalds og sjá hvort að getum ekki fundið tíma á morgun þar sem allir komast. Það er líka þannig að einhverjir af flokkunum þurftu líka smá andrými um helgina til að ræða við sína þingflokka og annað þannig að við komum öll mjög vel nestuð inn í þetta,“ segir Birgitta.

Þarf að fara ítarlega yfirríkisfjármálin

Birgitta kveðst bjartsýn á að flokkarnir nái saman um að mynda ríkisstjórn. Hún segir að hún telji það mjög brýnt að flokkarnir fari yfir þau mál sem stóðu út af í seinustu stjórnarmyndunarviðræðum flokkanna fimm og nefnir í því sambandi ríkisfjármálin og kerfisbreytingar, til að mynda í sjávarútvegi. Fyrir liggur að nokkuð langt er á milli Viðreisnar og Vinstri grænna í þessum tveimur málaflokkum en Birgitta tiltekur að sérstaklega þurfi að fara ítarlega yfir ríkisfjármálin í viðræðunum.

„Það voru komnar fram heilmargar tillögur um hvernig hægt sé að brúa einhver bil þannig að hægt sé að hrinda því í framkvæmd sem var lofað. Það eru ýmsar aðrar leiðir en hefðbundnar skattaleiðir og það þarf að leggja þetta allt á borðið, sjá hvar fólk getur náð saman og fá „input“ frá öllum, en ég veit að fólk er búið að sitja yfir ýmsum leiðum,“ segir Birgitta og nefnir gistináttagjaldið sem eina leið sem hægt væri að fara í skattheimtu.

Ekki gott að fara of hratt í hlutina

„En það er ótímabært að vera með miklar yfirlýsingar út af því að við þurfum fyrst að koma okkur saman um hvað það er best að ræða fyrst, en við teljum þó mikilvægt að ræða fyrst það sem við vorum ekki búin að ná utan um síðast.“

Þá segir Birgitta mikilvægt að fólkið sem taki þátt í stjórnarmyndunarviðræðunum fái að kynnast dálítið.

„Við erum öll í þeirri stöðu að við erum að gera þetta í fyrsta skipti og það hefur ekki verið reynt svona flókið ríkisstjórnarmynstur áður. Þess vegna er mikilvægt að fólk fái tækifæri til þess að tala saman og að það sé ekki verið að þvinga þetta í það hratt ferli að maður nái ekki að skapa þannig ramma utan um þetta að þetta haldi ekki.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×