Lífið

Bíllyklarnir ekki teknir af Ásdísi Rán

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ásdís Rán með lyklana.
Ásdís Rán með lyklana. mynd/facebook-síða ásdísar ránar
Glamúrfyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir prýðir forsíðu nýjasta heftis Séð og Heyrt þar sem sagt er að stjúpdóttir hennar hafi farið í hart og tekið af henni bíllyklana.

Ásdís Rán svarar Séð og Heyrt á Facebook-síðu sinni í dag og birtir mynd af sér með bíllyklana, en kærasti hennar, Jóhann Wium Tómasson, gaf henni bíl fyrir stuttu.

„Enn og aftur þá langar mig að biðja fólk um að taka forsíðu Séð og Heyrt ekki trúanlega ekki frekar en Óléttuna,“ skrifar Ásdís Rán á Facebook en stutt er síðan Séð og Heyrt birti frétt um að fyrirsætan bæri barn undir belti.

„Ég hef ekki hugmynd um hvað þessi forsíðugrein er um, kannast ekkert við þetta og finnst mjög leitt að þeir eða einhver sé að búa til svona óþarfa vesen,“ bætir Ásdís Rán við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×