Innlent

Bifhjólamaðurinn þungt haldinn

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/gva
Bifhjólamanninum sem lenti í slysi á Holtavörðuheiði á laugardag er enn haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans. Ástand hans er alvarlegt að sögn vakthafandi læknis.

Maðurinn hafnaði utan vegar síðdegis á laugardag. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og flutti manninn á slysadeild. Hann er á fertugsaldri samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×